Fara beint í efni
JeES

Út­sýn­is­hús í Innri-Njarð­vík.

Upplýsingar

Húsið er hannað sem nútímalegt tveggja hæða heimili með sér íbúð til útleigu sem er felld inn í heildarform byggingarinnar. Formið tekur mið af afstöðu lóðarinnar og landslaginu í kring: helstu dvalarrými eru staðsett þannig að þau njóti útsýnis til norðurs yfir flóann og góðrar dagsbirtu yfir daginn. Djúpt innskot í bygginguna myndar skjólsæla verönd og sameinar opnun að landslaginu, skjól fyrir ríkjandi vindátt og útirými í miðju byggingarformsins. Húsið rúmar aðalíbúð, sjálfstæða aukaíbúð og innbyggða bílgeymslu.

Staðsetning
Reykjanesbær
Kúnni
einstaklingur
Stærð
278 m²
Ár
2024
Týpa
Íbúðarhúsnæði

Hófstillt efnisval einkennir húsið, þar sem dökk álklæðning er sameinuð timbri á innfelldum veröndum og skjólsælum útisvæðum. Þessar andstæður undirstrika dýpt innskotanna og gefa húsinu hlýlegra yfirbragð þar sem inni- og útirými mætast. Stórir gluggar og op eru einkum við helstu dvalarrými og verandir og styrkja samspil dagsbirtu, útsýnis og landslagsins í kring.

Önnur verk­efni