Stækkun á fimleikahús Reykjanesbæjar
Upplýsingar
Tillagan stækkar núverandi Íþróttaakademíu með nýjum fimleikasal sem mætir þörfum vaxandi starfsemi sem hefur sprengt utan af sér núverandi aðstöðu. Nýr 2.370 m² salur er staðsettur við hlið núverandi 977 m² fimleikasalar og saman mynda þeir 3.347 m² æfingasvæði. Viðbyggingin felur einnig í sér tveggja hæða þjónustuálmu með búningsklefum, geymslum, aðstöðu fyrir starfsfólk og þjálfara, fjölnota rýmum og áhorfendasvæðum með sætum fyrir allt að 500 manns. Innra skipulagið aðgreinir íþróttafólk og starfsfólk á jarðhæð frá áhorfendum á efri hæð. Það eykur öryggi, skýrir daglegan rekstur og gerir kleift að halda stærri mót án þess að raska daglegum æfingum.
- Staðsetning
- Reykjanesbær
- Kúnni
- Reykjanesbær
- Stærð
- 3 350 – 3 500 m²
- Ár
- 2026
- Týpa
- Opinberar byggingar
Verkefnið er hugsað sem beint framhald af núverandi íþróttasamstæðu. Helstu umferðarleiðir haldast og fimleikastarfsemi getur haldið áfram meðan á framkvæmdum stendur. Einfalt burðarkerfi, stórt óskipt æfingarými og markviss notkun endingargóðra, einfaldra efna beina fjárfestingunni að notagildi, öryggi og sveigjanleika til framtíðar. Með því að samþætta ný rými við núverandi húsnæði í stað þess að leysa það af hólmi skapar tillagan heildstæðari svæðisbundna miðstöð fyrir almenningsfimleika, barna- og ungmennastarf, afreksíþróttir, fræðslu og keppni.