Fara beint í efni
JeES

Nettó-reit­ur­inn við Vatns­holt

Upplýsingar

Tillagan umbreytir vannýttu verslunar- og þjónustusvæði í blandaða byggð sem myndar tengingu milli íbúðarbyggðar við Vatnsholt og atvinnusvæðisins við Iðavelli. Gert er ráð fyrir tveggja til fjögurra hæða byggingu með allt að 57 íbúðum af mismunandi stærðum ásamt verslunar- og þjónusturými. Bílastæðum er að mestu komið fyrir innan jarðhæðar til að draga úr ásýnd þeirra og skapa skýrara og vistlegra bæjarrými.

Staðsetning
Reykjnesbær
Kúnni
Kaupfélag Suðurnesja
Stærð
5 496 m²
Ár
2022
Týpa
Íbúðarhúsnæði, Skipulag, Atvinnuhúsnæði

Sameiginlegur inngarður verður hjarta svæðisins með gönguleiðum, leiksvæði, setubekkjum og gróðri. Hæðir byggingarinnar, uppbrot fasada og fjölbreytt efnisnotkun minnka sjónrænan skala hennar, á meðan græn þök, tengingar fyrir gangandi og hjólandi og greining á skuggavarpi styðja við góða aðlögun að nærliggjandi byggð

Önnur verk­efni