Fara beint í efni
JeES

Minn­is­varða­garð­ur í gamla bænum

Upplýsingar

Tillagan skapar varanlegan minningarstað sem gefur svæðinu um leið nýtt hlutverk í daglegu lífi samfélagsins. Núverandi minningarsteinn er áfram þungamiðjan á hellulögðu torgi sem markar fyrra grunnflatarform hússins. Lágur steinsteyptur veggur með tíu lóðréttum ljóseiningum er til minningar um þau tíu sem létust. Einfalt skýli, setaðstaða og gróður mynda kyrrláta og skjólsæla umgjörð fyrir íhugun, minni samkomur og daglega notkun.

Staðsetning
Reykjanesbær
Kúnni
JeES arkitektar
Stærð
-
Ár
2026
Týpa
Opinberar byggingar

Tillagan sameinar minningu, landslag og samveru í stað þess að skilja minningarstaðinn frá samtímanum. Nýir stígar, græn svæði og lítið leik- og athafnasvæði víkka hlutverk staðarins sem opins hverfisgarðs. Þannig verður til aðlaðandi staður fyrir börn, íbúa og gesti, um leið og virðing og reisn eru varðveitt við sjálfan minnisvarðann. Byggingarlistinni er vísvitandi haldið látlausri svo saga staðarins sé áfram nærverandi án þess að yfirgnæfa daglega notkun hans.

Önnur verk­efni