Miðbæjarkjarni í Njarðvík
Upplýsingar
Tillagan gerir ráð fyrir nýrri íbúðabyggð með blandaðri starfsemi á svæði sem er að hluta þegar byggt, við eina af megingötum Njarðvíkur. Íbúðir eru sameinaðar verslun og þjónustu á jarðhæð, sem styrkir götumyndina og stuðlar að líflegra miðbæjarumhverfi. Tveimur íbúðarhúsum er komið fyrir þannig að þau myndi tengingu milli þéttbýlislegs yfirbragðs Hólagötu og Borgarvegar og lægri íbúðabyggðar við Holtsgötu. Byggingarmassinn er brotinn upp til að falla betur að hlutföllum og einkennum hverfisins í kring.
- Staðsetning
- Reykjanesbær
- Kúnni
- Sparri
- Stærð
- 5 684 m²
- Ár
- 2024
- Týpa
- Atvinnuhúsnæði, Íbúðarhúsnæði, Skipulag
Í skipulaginu er einnig lögð áhersla á rýmin milli húsanna, með göngutengingum um svæðið, gróðursælum húsagörðum og skjólsælum útisvæðum sem taka mið af sól, vindi og næði. Almenningsrými sem snýr til suðurs er varið fyrir ríkjandi norðanáttum. Vind- og skuggagreiningar móta staðsetningu og form bygginga, gróðurs og sameiginlegra útisvæða. Tillagan er hugsuð sem þétt uppbygging innan núverandi byggðar sem styrkir bæjarmyndina og tekur um leið tillit til aðliggjandi íbúðarhúsnæðis.