Íbúðir með stuðningsþjónustu í Reykjanesbæ
Upplýsingar
Verkefnið samanstendur af sex raðhúsum á einni hæð, hönnuðum sem aðgengileg og vel nýtt heimili fyrir íbúa með mismunandi hreyfigetu. Hver íbúð hefur eigin inngang, einkaverönd og skýrt innra skipulag. Rúmgóðar umferðarleiðir, snúningssvæði og baðherbergi auðvelda fólki að komast um og styðja við sjálfstæði í daglegu lífi.
- Staðsetning
- Reykjanesbær
- Kúnni
- Brynja fasteignafélag
- Stærð
- 423 m²
- Ár
- 2026
- Týpa
- Íbúðarhúsnæði
Byggðin fylgir náttúrulegum halla lóðarinnar og íbúðareiningarnar stallast eftir honum. Þannig tekur byggingin beint mið af landinu, en heldur einfaldri uppbyggingu sem auðvelt er að endurtaka. Burðarvirki úr járnbentri steinsteypu, dökk álklæðning og timburáherslur skapa traust og samræmt yfirbragð, þar sem notagildi og hagkvæmni í framkvæmd eru meginforsendur hönnunarinnar.