Hraunheimar - Leikskóli
Upplýsingar
Hraunheimar er nýr einnar hæðar leikskóli við Bárugötu 22, hugsaður sem menntunar- og samfélagslegur kjarni nýrrar byggðar sem er að rísa í vesturhluta Þorlákshafnar. Leikskólinn er fjögurra deilda og tekur allt að 81 barn. Deildirnar koma saman í pörum og deila sameiginlegum náms- og stoðrýmum. Stórir gluggar og bein tengsl við leiksvæðin skapa náið samband milli inni- og útiveru. Lóðin er jafnframt skipulögð með framtíðarstækkun í huga, þannig að fullbyggður leikskóli geti rúmað allt að 128 börn.
- Staðsetning
- Þorlákshöfn
- Kúnni
- Sveitarfélagið Ölfus
- Stærð
- 879,8 m²
- Ár
- 2022–2025
- Týpa
- Innanhússhönnun, Opinberar byggingar
Lágreist og uppbrotin byggingin tekur mið af mælikvarða barnanna en fær um leið skýra ásýnd innan hins nýja hverfis. Náttúruleg timburklæðning gefur húsinu hlýlegt og áþreifanlegt yfirbragð, á meðan grænir gluggar og smáatriði skapa sterkan litrænan karakter. Stórir glerfletir, skjólgóðir inngangar og yfirbyggð útirými styrkja tengsl leikrýma við útisvæði og dagsbirtu.