Fara beint í efni
JeES

Gróf­in, byggð við höfn­ina

Upplýsingar

Tillagan endurskoðar upprunalegar skipulagsforsendur og aðlagar þær betur að landslaginu, nærliggjandi bæjarvef og mikilvægi staðarins fyrir samfélagið í Keflavík. Mótuð er smágerð borgarbyggð með allt að 92 íbúðum, sem skilgreinir skýr mörk en helst jafnframt opin þannig að innri garðurinn verði skjólgott og aðlaðandi sameiginlegt rými fremur en lokaður kjarni. Íbúðarbyggðinni fylgir verslun og þjónusta á jarðhæð að hafnarhlið, sem styrkir mannlíf og tengsl byggðarinnar við höfnina.

Staðsetning
Reykjanesbær
Kúnni
Reykjanes Investment
Stærð
10.262 m²
Ár
2025
Týpa
Íbúðarhúsnæði, Skipulag

Að hafnarsvæðinu er byggingarmassinn lyftur til að bregðast betur við aðstæðum og skapa opnara samband við sjóinn. Sameiginlegt almenningsrými stígur upp í þrepum frá bryggjunni og myndar sveigjanlegt svæði fyrir dvöl, samveru og viðburði. Bílastæði eru leyst í bílageymslu undir byggðinni, þannig að jarðhæðin geti fyrst og fremst þjónað gangandi fólki, samfélagslífi og vönduðu búsetuumhverfi.

Önnur verk­efni