Fara beint í efni
JeES

Fugla­skoð­un­ar­skýli á Fitj­um

Upplýsingar

Verkefnið felur í sér fjögur fuglaskoðunarskýli á Njarðvíkurfitjum. Þau eru hönnuð til að veita skjól fyrir veðri og gera gestum kleift að upplifa fjölskrúðugt fuglalíf án þess að trufla það. Skúlptúrkennd form þeirra rísa smám saman upp úr landslaginu og mynda skjólsæla útsýnisstaði sem ramma inn valin sjónarhorn yfir votlendið og flóann.

Staðsetning
Reykjanesbær
Kúnni
Reykjanesbær
Stærð
-
Ár
2020
Týpa
Opinberar byggingar

Skýlin sameina galvanhúðaða stálgrind, steinsteyptan grunn og ómeðhöndlað lerki, sem er valið til að veðrast náttúrulega og falla sífellt betur að landslaginu í kring. Opin rimlaklæðning úr timbri veitir næði og skjól um leið og hún síar dagsbirtu inn í skýlin. Eftir myrkur gerir sama gegnsæi það að verkum að skýlin minna á látlaus ljósker í landslaginu.

Önnur verk­efni