Fara beint í efni
JeES

Byggð við sjáv­ar­síð­una

Upplýsingar

Tillagan umbreytir Vatnsnesi úr sundurlausu atvinnu- og iðnaðarsvæði í nýtt strandhverfi í sterkum tengslum við miðbæ Keflavíkur og náttúru sjávarbakkans. Ellefu sjálfstæð fjölbýlishús mynda þétta en opna byggð með um 328 íbúðum. Mismunandi hæðir, þakform og uppbrot bygginganna draga úr mælikvarða heildarinnar og tryggja sjónræn og rýmisleg tengsl milli Hrannargötu og sjávarins.

Staðsetning
Reykjanesbær
Kúnni
Vatnsnesfrontur
Stærð
19.295 m²
Ár
2022
Týpa
Skipulag, Íbúðarhúsnæði, Opinberar byggingar

Sameiginlegur sökkull og bílakjallari tengja byggðina saman og lyfta íbúðarhæðum frá göturýminu. Verslun og þjónusta safnast að sameiginlegu torgi sem myndar félagslegan kjarna svæðisins. Gönguleiðir, gróður, setsvæði og breiðar tröppur tengja byggðina við strandstíginn og gera klettótt sjávarlandslagið að virkum hluta daglegs umhverfis íbúa. Efnisnotkun er látlaus og náttúruleg og tekur mið af opnu og veðurfarslega krefjandi strandsvæðinu.

Önnur verk­efni