Barnahorn í byggðasafni Reykjanesbæjar
Upplýsingar
Verkefnið umbreytir litlum hluta hins sögulega Bryggjuhúss í hlýlegt og óformlegt lestrar- og leikrými fyrir börn. Byggt er yfir fyrrum niðurgrafna flutningsleið, en ummerki hennar eru vísvitandi gerð sýnileg í gólfi, brúnum, lýsingu og efnismeðferð. Færanlegur bókaskápur afmarkar barnasvæðið án þess að skipta rýminu varanlega, þannig að breytingin haldist sveigjanleg og afturkræf innan hinnar vernduðu byggingar.
- Staðsetning
- Reykjanesbær
- Kúnni
- Reykjanesbær
- Stærð
- 18 m²
- Ár
- 2026
- Týpa
- Opinberar byggingar, Endurgerð, Innanhússhönnun
Meginþáttur rýmishönnunarinnar er nýr gluggi í núverandi hurðaropi sem skapar bein sjónræn tengsl við sjóinn og hafnarumhverfið. Lágir timburbekkir eru staðsettir framan við gluggann og mynda notalegan stað til að lesa, sitja og leika í rólegheitum. Mjúkt gólfefni, hlýlegir timburfletir og óbein lýsing gefa rýminu rólegt og barnvænt yfirbragð. Inngripinu er vísvitandi haldið í lágmarki, þannig að hið sögulega burðarvirki og ytra yfirbragð varðveitist, um leið og ný dagleg notkun fellur eðlilega inn í menningarlíf Duushúsa.